Saturday, February 20, 2010












Já svona er ég orðinn stór og flottur! Og orðin svaka duglegur og sjálfstæður, vill gera allt einn og óstuddur. Ég elska að skoða bækur, dansa, syngja, hlaupa um, vera úti, skoða dýr og horfa á Skoppu og Skrýtlu. Kann meira að segja að kveikva á sjónvarpinu og DVD spilaranum þannig ég get horft á Skoppu og Skrýtlu eins oft og vill, mömmu til mikillar gleði, hún kann orðið flest lögin utan af!





Svo er ég byrjaður í leikskóla og heitir leikskólinn minn Bakkaborg. Þar er gott og gaman að vera og á ég þar marga góðar vini og ekki skemmir að leikskólakennararnir er alveg æðilegir og góðir við mig! Á öskudaginn var grímuball á Bakkaborg og auðvita fór ég í grímubúning! Þar sem ég er svo sterkur og klár þá kom ekkert annað til greina en að vera LJÓN!





Um daginn þá skellti ég mér í leikhús að sjá, já auðvita, Skoppu og Skýrtlu, hvað annað! Að sið sannra herramanna þá bauð ég dömu með mér og fyrir valinu var auðvita hún Sólveig Meer! Við skemmtum okkur konunglega enda ekki annað hægt þær vinkonur eru svo fyndnar. Ég auðvita skellti mér í mitt fínast púss eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.