Hello hello!
Aldeilis sem tíminn líður hratt, svo hratt að það er erfitt að festa hann niður á bloggsíðu.
En nú skal bæta í eyðurnar sem hafa skapast hérna í bloggleysinu.
1. Prinsinn fagri, Natan Blær, var eins og alþjóð veit, 1 árs þann 22. maí sl. Eins getur í bloggfærslu hér á undan þá skelltum við okkur í sveitina og hittum ömmur og afa, frænkur og frændur. Prinsinn fékk hvorki meira né minna en 3 afmælisveislur þessa helgina. Amma Dreki og afi komu frá Egilsstöðum og leigðu bústað rétt hjá ættaróðalinu þannig stutt var að skreppa til þeirra í pottinn og dekur að hætti þeirra. Við ákváðum svo að rækta ættartengslin og brunuðum til Dalvíkur og heilsuðum upp Bubba og Fjólu og kíktum á elliheimilið og köstuðum kveðju á Steinunni og Halldór. Þau voru auðvita svaka glöð að fá að sjá nýjasta meðliminn í ættinni enda kominn tími til þar sem kappinn er orðinn 1 árs.
2. Afmælisgjafirnar voru auðvita ekki af verri endanum: kubbar, náttföt og stígvél frá ömmu Dreka og afa á Egilsstöðum, sandalar frá ömmu og afa í Samkomugerði (eiga sko eftir að
koma að góðum notkun í ferðalaginum ógurlega sem fram undan er), sanddót frá Dóru frænku og Helgu Líf, kubbatrévagn frá Blúndum, sem að þeirra sögn á að efla og þroska fínhreyfingarnar hjá gaurnum (ekki veitir af....) Svo fékk prinsinn þessar líka flottu fatagjafir frá frændfólkinu í Finnlandi.....Takk fyrir okkur!
3. Amma Dreki og afi komi og stoppuðu í bænum áður en þau héldu á stað til Finlands. Þau eru svo pjöttuð að þau leigðu sér íbúð til að vera í meðan þau dvöldu hérna í stórborginni. (finnst greinileg ekki þeim samborið að dvelja í Breiðholtinu með hinum rónum ... :) ). En auðvita ákvað mamman að nýta sér þetta tækifæri og kom prinsinum fyrir í NÆTURPÖSSUN og skellti sér á langþráð djamm með hinum síungu Beyglum. Sannarlega þykknunar virði að eyða kvöldstund með þeim!
4. Ekki hafa bara verið eintómir sæludagar á hjá prinsinum góða. Eyrun voru endalaust að þjaka hann og var svo komið, eftir fimmta pensilinnkúrinn, að foreldarnir sögðu hingað og ekki lengra og skunduðu með Sætamund til háls, nef og eyrnalæknis. Við skoðun kom í ljós að litlu eyrun hans voru undirlög af eyrnabólgu og hljóðhimna t.d. margsprunginn. Læknir mat ástandi sem svo að það væri ekki eftir neinu að bíða en að skella rör í eyrun og lækna þetta leiðinda vandamáli í eitt skiptið fyrir öll. Úr varð að fjölskyldan fór á skuðstofuna og sett voru rör í eyrun og hluti af nefkirtlinum fjarlæður. Það verður að segjast að mamman hafði ekki taugar í þetta og varð buguð af væli áður en lækninum tókst að svæfa strákinn. Í öllu taugveikiskastinu gleymdi hún að hugsa um pabbann sem er þekktur fyrir að falla i yfirlið bara við það eitt að sjá sprautur. En pabbinn er annaður fyrir karlmennsku og hreysti og hrakaði þetta af sér þar til að búið var að svæfa snúðinn. Þá kom hann fölur og fár og alveg miður sín. Pabbinn sagði að það hafi verið hræðilegt að fylgjast með þegar verið var að svæfa kútinn, hann hafi barist um og reynt eftir fremsta megni að taka af sér svæfingagrímuna og þegar hann hafi svo sofnað þá varð snúllinn eins og líflaus dúkka í fanginu á pabbanum. Mamman prísaði sig sæla að hafa ekki verið vitni af þessum ósköpum því guð einn veit hvernig það hefði endað.....!
5. Prinsinn er búinn að vera ansi víðförull það sem af er þessu sumri en þó mest á norðurlandinu. Amma Lydía og afi komu suður til að hjúkra snúllanum eftir eyrnaaðgerðina svo mamman og pabbi gætuð óhindrað gætt að lögum þessa lands. Svo tók hún Dóra frænka upp á því að fá sér vinnu á austfjörðunum fögru.....húrra fyrir henni! Því þurftu allir að leggjast á eitt til að koma henni og hennar hafurtaks í réttan landshluta. Þannig að við brunuðum með fulla kerru af búslóð norður í sæluna og amma, afi, Dóra og Helga Líf fylgdu á eftir. Foreldarnir ákváðu svo að leyfa snúllanum að jafna sig í rólegheitunum eftir aðgerðina í sveitinni hjá ömmu og afa og skildu því prinsinn eftir þegar þau fóru aftur í bæinn. Mikið svakalega var tómlegt í kofanum þá tvo heilu daga sem prinsinn var í burtu! Amma og afi komu svo með hann aftur í bæinn en þrælahaldi þeirra í barnapössun lauk ekki þá.....langt í frá! Fjallaþrá mömmunnar var orðin óbærileg og ekkert gat stöðvað hana í að ganga Leggjabrjót þannig að amma og afi voru dæmd til að passa yfir helgina þar sem pabbinn var að vinna. Ekki nóg með það......því að eftir helgapössunina var ákveð að snúllinn færi aftur með þeim norður þannig að nú eru þau búin með ársskammtinn af snúllapössun......eins gott að amma Dreki er að koma heim ;). Mamman og pabbinn ætla svo að fara norður í kvöld, pikka snúllann, ömmu, afa og Helgu Líf upp og halda í útilegu í Ásbyrgi. Dóra frænka kemur svo að austan og hitti okkur þar. ÆÐI, er lífið ekki dásamlegt ;)
Svo styttist óðum í ferðalagið mikla og allir orðnir svaka spenntir. Amma er næstum því að vera búin að endurhanna fellihýsið og er búin að gera það SVO kósý, okkar hlakkar mikið til að fá að prófa það um helgina. Pabbinn er byrjaður að pakka og tína til það sem nauðsynlegt er að hafa með sér í svona langferð en mamman er enn að reyna skipuleggja sig i huganum, hvort hún eigi að fara með sléttujárnið eða hárblásara, síðan eða stuttan kjól, ljósu eða dökku gallabuxurnar, þessar eða hinar íþróttabuxurnar......já, það fer ekki á milli mála hver er heilinn í þessu sambandi ;)
Thursday, July 9, 2009
Subscribe to:
Posts (Atom)
