Thursday, May 14, 2009

Frí frí sumarfrí


Víff, þá er það komið á hreint. Lydia amma er búin að bóka farið okkar með Norrænu. Við fórum út þann 30. júlí og komum ekki heim fyrr en 29. ágúst. Glæsilegt, nú er ekkert eftir nema bara að pakka. Það getur orðið pínu vandi því pabbinn segir að við verðum að pakka sparlega og það er eitthvað sem mamman hefur aldrei kunnað ;)


Annars erum við líka að fara í pínu ferðalag í næstu viku. Ætlum nefnilega að skella okkur í afmælisferð norður. Ákváðum þetta því Lydia amma bakar svo góðar kökur og því tilvalið að eyða afmælisdeginum hjá henni. Og svo er rúsínan í pylsuendanum að amma derki og afi á Egilsstöðum ætla líka að koma og vera með okkur. Er hægt að óska sér einhvers meira og betra á fyrsta afmælisdeginum sínum? Ji, hvað við erum orðin spennt og hlökkum mikið til að sjá þau. En vinir okkar í stórborginni, örvæntið ei því við munum sko halda ærlega afmælisveislu fyrir ykkur líka! Nánari dagsetning auglýst síðar :)

Tuesday, May 5, 2009

Yndisleg helgi!

Löng helgi að baki og tekinn við ný vinnuvika. Leiðinlegt hvað þessar helgar líða alltof hratt. Við skötuhjúin byrjuðum helgina á því að bregða okkur í leikhús á Sannleikann með Pétri Jóhanni. Algjör snilld! Mæli sko með þessu showið. Vallýju frænku hlotnaðist sá heiður að fá að eyða kvöldstund með snúllanum á meðan mamma og pabbinn hlóu úr sér líf og lungu. Snúllinn var auðvita til fyrirmynda eftir að foreldranir voru farnir en lét svona aðeins heyra í sér þegar þau voru að gera sig klár fyrir kvöldið. Fann greinilega að eitthvað lá í loftinu og þurfti svona aðeins að mótmæla.





Amma og afi komu svo að norðan ásamt Helgu Líf frænku. Það var nú ósköp yndislegt að hitta þau enda langt um liðið síðan síðast. Helginni var að mestu eytt með þeim í leit að fellhýsi fyrir ferðalagið mikila. Sú leit skilaði árangur því þau fundu líka þetta glæsilega fellhýsi sem þau ákvaðu að festa kaup á. Óskum þeim til lukku með kaupin! Nú er allt að verða klárt fyrir ferðina, eigum bara eftir að panta miðana!





Mamman, pabbinn, Dóra frænka og Helga Líf ákvaðu svo að enda helgina með stæll og gengu á Esjuna í kalsaveðri en algjörlega þess virði. Þau komust reyndar ekki upp á topp, létu bara duga að labba að Steini út af veðrinu. En betra er hálft fjall en ekkert fjall, ekki satt! ;)