
Natan Blær var 11 mánaða í gær og eyddi deginum heima lasinn og óhamingjusamur. Sömu sögu er að segja af móður hans sem einnig lá í rúminu með ælupest! Þvílíkur viðbjóður, við hötum ælupestir!
En snúum okkur af gleðitíðindum. Natan fór í 10 mánaðaskoðunina......(doldið sein að skrifa boggfærslur, I know!) og hann mældist 10 kíló og 76 cm. á lengd. Alveg í takt við þessa blessaða kúrfu sem öllu skiptir í þessum skoðunum. Svo Valla mín ef þú lest þetta þá er hann að nota föt númer 80...svona næst þegar þú ferð í búð og sérð einhvað sæt ;)
Svo er Natan byrjaður hjá dagmömmunni og gengur ljómandi vel. Hann er búinn að vera hjá henni í mánuð og ekki yfir neinu að kvarta. Ég held að þau hafi svona matarást á hvort öðru, þ.e.a.s Natan og dagmamman. Natan elskar að borða og hún elskar að gefa honum að borða. Þegar komið er að ná í Natan þá liggur hann afvelta og það tekur dagmömmunna svona korter að telja upp það sem hann fékk að borða síðasta hálftímann og síðan endar hún á því að segja" Já, hann bara elskar að borða"

Jú,jú það er rétt að litli karlinn minn er matagat enda hefur hann það ekki langt að sækja :)
Itta amma kom svo í stutta heimsókn áður en hún hélt út fyrir landsteinana. Það var nú aldeilis fjörið á bænum í hennar návist. Natan fílaði þessa konu alveg í botn enda ekki á hverjum degi sem einhver nennir að skríða með honum um gólfin, fara í eltingaleik á fjórum fótum, syngja, dansa og dúllast með hann alveg út í eitt. Mamman var líka hæstánægð með þessa heimsókn þar sem Itta amma er með hreingerningaæði þannig ekki leið á löngu þar til allt ilmaði af hreinlæti í bakkanum og allur þvotturinn þvegin á meðan mamman sat upp í sófa og hvíldi lúin beinin.
Natan er nú farinn að skríða, (fyrir löngu) standa upp sjálfur, klappa saman lófunum og margt fleira. Hann vill helst fá að labba en er ekki alveg kominn á lagið með að gera það einn og óstuddur. Foreldrarnir neyðast því að ganga með hann bognir í baki um alla íbúð. Ekki þýðir að reyna fá drenginn til að sitjast þó svo að þeir séu alveg búnir í bakinum því hann sest bara þegar hann er búinn að fá nóg af því að labba og það getur oft verið eftir daggóðastund.
Sumaðir nálagst ófluga og eru stór plön framundan hvað það varðar. Pabbinn stendur í ströngu við að skipuleggja sumarfríið sem á að ná fyrir utan landsteinana ef allt gengur eftir. Síðan leitar hann logandi ljósi af hljóla/hlaupakerru svo hægt verði að hafa Natan með í öllu sem við ætlum að gera í sumar. Eitthvað er kreppan að setja strik í reikningin hérna á Ice því það er hægara sagt en gert að finna slíkan grip sem kostar ekki handlegg og fót.
En svona til að toppa þetta þá eru meira að segja komnar nýjar myndir í albúmmið okkar....já það er sko drífandi gangur á þessari síðu´;)