Monday, March 9, 2009

Fyrsti dagurinn í pössun

Nú eru áhyggulausir dagarnir hjá Natani í öruggu skjóli foreldra sinna, lokið! Pabbinn hélt til vinna á ný eftir mánaða frí og litli gaurinn því sendur í fyrsta skiptið í pössun í heilann dag! En það er nú ekki pössun að verri endanum því enginn önnur en yfirblúndan tók að sér að hugsa um kúttinn á meðan foreldarnir sterða. Aðvísu er það bara tímabundið því í næsta mánuði þá á drengurinn að fara til sonna ekta dagmömmu. Við fundum ágætis konusnót sem býr í nágrenni við okkur og eru 8 önnur börn þarna líka. Ekki amalegt það að fá leikfélaga.



Það verður að viðurkennast að móðurhjatað var heltekið af sektarkennd þegar hún yfirgaf barnið sitt í morgun og hún óskað það með sér að hún hefði getað tekið sér lengra fæðingaorlof.

En þannig er þetta bara, kaldur veruleikinn runninn upp og lífið orðið eina rútína; rífa sig upp á morgana, klæða sig í gallann og út í frostkaldann morguninn, ná í barnið eftir vinnu, eiga með því örfá klukkutíma áður en það fer að sofa og vera svo örþreyttur sjálfur að maður getur ekki einu sinni haldið sér vakandi yfir aðþrengdum eiginkonum!