Saturday, February 28, 2009

All by myself....

söng frú Celine Dion að alkunnri snilld eins og flestir muna. Þannig hafa síðustu tvær vikur liðið hjá mér, ég er búin að vera all by myself. Gúbbarnir mínir tveir ákvaðu nefnilega að vera eftir í sveitinni meðan ég þurfti að halda suður til að vinna fyrir salti í grautinn. Sem betur fer eru nú þessar tvær vikur á enda og koma þeir í bæinn á morgun! Yndislegt! Búið að vera frekar súrt að koma heim úr vinnunni og engin til að knúsa og skemmta sér með. Ég hélt að ég myndi fíla það í botn að fá smá tíma fyrir sjalfan mig og geta gert allt það sem enginn tími hefur verið til að gera síðan litli snúllinn minn kom í heiminn. En þrátt fyrir einveruna þá hefur lítið verið gert og hef ég komist af því að mig langar ekki að eyða tíma í sjálfan mig heldur vil ég eyða honum með snúllanum mínum :) Dagarnir eru bara ekkert skemmtilegir án hans!

Tuesday, February 24, 2009

Tvíburinn...

barn í tvíburamerkinu er snöggt í hreyfingum eins og svipu sé veifað, þó svo að flestar hreyfingar séu uppávið. Þetta barn er alltaf á leiðinni upp á eitthvað. Talandi um orku og virkni! Þetta barn fer létt með að gera 3 hluti í einu og er líklegt til að gera þá alla vel. Hægt er að segja um barn í tvíburamerkinu að það sé mjög klókt og komi sífellt á óvart. Það er einnig ósvífið og gæti komið heim með kettling með slaufu um hálsinn (sem það fann) og fært mömmu sinni að “gjöf”. Sætt, ekki satt? Það sem þessu barni leiðist er að hafa ekkert að gera, svo vertu viss um að stundatafla þess sé alveg þétt skipuð (íþróttir, klúbbar, útivist o.s.frv.) Vegna þess hve barnið er upptekið og hefur margt fyrir stafni þá eignast það marga vini. Tvíburanum líkar að vera trúðurinn í bekknum og gerir í því að gretta sig og segja brandara. Tvíburinn er fyndinn og býr yfir góðum húmor. Hugur hans ferðast á ógnarhraða og auðvelt að örva. Vertu viss um að hann hafi alltaf nóg að lesa. Fyrir utan lestur þá hefur barn í tvíburamerkinu einnig mikla unun af því að tala, segja brandara og taka þátt í íþróttum, og það vill gera þetta allt núna strax. Þegar þú reynir að sjá fyrir þér barn í tvíburamerkinu þá skaltu hugsa um Línu Langsokk. Hallaðu þér aftur, dragðu andann djúpt og taktu þátt í fjörinu.

Monday, February 23, 2009

Tími fyrir bað?


Þarf maður ekki að fara skella sér í bað?



Ætla baðið sé tilbúið?




Oh já, þetta er voðalega notalegt!