Saturday, January 31, 2009

Well...whazz up!

Herru já bara liðnir næstum því tveir mánuðir og ekkert búið að blogga. Fyrstu jólinn búinn og tennur raðast niður og enginn til að rita það á spjöld sögunnar!









En þá er bara að byrja á byrjunni og fylla upp í eyðurnar:









Fyrstu jólin:




Við fórum til ömmu og afa á Egilsstöðum þann 8. des og vorum alveg til 4. jan. Það var auðvita alveg ósköp ljúft og stjanað við okkur eins við værum konungborinn. En þegar líða fór að jólum þá dróg aðeins ský fyrir sólu og flensan bankaði upp á að Mánatröðinni! Flensan lagði afa, ömmu og Natan að velli. En Mamman, Anah og Nadir stóðu þennan viðbjóð af sér og eyddu því jólunum í að hjúkra hinum sjúku. Næturnar fóru í að ganga með Natan um gólf sem var bugaður af hori og tárum. Á aðfangadagskvöld náðu þó amma og afi að hrista af sér mesta slenið og taka þátt í jólagleðinni. Natan var á hin bóginn ekki alveg búinn að jafna sig og grét hástöfum við jólaborðhaldið og bugaður af sótthita og kvölum svaf hann frá sér fyrsta aðfangadagskvöldið sitt. Anha frænka kom svo vel á orði um fyrstu jólinn hans Natan en hún sagði orðrétt " Poor Natan, his first christmas are disaster! Ofaná flensu viðbjóðinn ákvaðu svo framtennurnar í efrigóm að láta sjá sig og ekki var það nú til að bæta skapið hjá litla karlinum. En í dag er hann hæstánægður með þessa nýju viðbót og skartar þessum líka svaka fínu tönnum.








Áramótin voru með rólega móti hjá okkur. Við skelltum okkur auðvita á áramótabrennu og borðum góðan mat, horfum á skaupið og skutum upp flugeldum. Natan var ekki að kippa sér upp við sprengingarnar og svaf á sínu græna þegar nýja árið gekk í garð. Mamman aftur á móti ákvað að tími væri kominn til koma á lög og reglu á héraðinu og troð sér í uniformið og lét á vakt sem var fremur viðburðasnauð.





Þegar nýja árið var gengið í garð gátum við ekki verið lengur án pabba og héldum því á ný til Reykjavíkur. Við þurftum auðvita líka að koma Önhu og Nadir aftur til London, því miður! Vildum að við gætum ráðið Önhu ævilangt sem au-pair hjá okkur, svo yndisleg er stúlkan :)











Þannig var þetta nú i grófum dráttum hjá okkur.