Tuesday, May 5, 2009

Yndisleg helgi!

Löng helgi að baki og tekinn við ný vinnuvika. Leiðinlegt hvað þessar helgar líða alltof hratt. Við skötuhjúin byrjuðum helgina á því að bregða okkur í leikhús á Sannleikann með Pétri Jóhanni. Algjör snilld! Mæli sko með þessu showið. Vallýju frænku hlotnaðist sá heiður að fá að eyða kvöldstund með snúllanum á meðan mamma og pabbinn hlóu úr sér líf og lungu. Snúllinn var auðvita til fyrirmynda eftir að foreldranir voru farnir en lét svona aðeins heyra í sér þegar þau voru að gera sig klár fyrir kvöldið. Fann greinilega að eitthvað lá í loftinu og þurfti svona aðeins að mótmæla.





Amma og afi komu svo að norðan ásamt Helgu Líf frænku. Það var nú ósköp yndislegt að hitta þau enda langt um liðið síðan síðast. Helginni var að mestu eytt með þeim í leit að fellhýsi fyrir ferðalagið mikila. Sú leit skilaði árangur því þau fundu líka þetta glæsilega fellhýsi sem þau ákvaðu að festa kaup á. Óskum þeim til lukku með kaupin! Nú er allt að verða klárt fyrir ferðina, eigum bara eftir að panta miðana!





Mamman, pabbinn, Dóra frænka og Helga Líf ákvaðu svo að enda helgina með stæll og gengu á Esjuna í kalsaveðri en algjörlega þess virði. Þau komust reyndar ekki upp á topp, létu bara duga að labba að Steini út af veðrinu. En betra er hálft fjall en ekkert fjall, ekki satt! ;)

0 comments:

Post a Comment