Nú eru áhyggulausir dagarnir hjá Natani í öruggu skjóli foreldra sinna, lokið! Pabbinn hélt til vinna á ný eftir mánaða frí og litli gaurinn því sendur í fyrsta skiptið í pössun í heilann dag! En það er nú ekki pössun að verri endanum því enginn önnur en yfirblúndan tók að sér að hugsa um kúttinn á meðan foreldarnir sterða.
Aðvísu er það bara tímabundið því í næsta mánuði þá á drengurinn að fara til sonna ekta dagmömmu. Við fundum ágætis konusnót sem býr í nágrenni við okkur og eru 8 önnur börn þarna líka. Ekki amalegt það að fá leikfélaga.

Það verður að viðurkennast að móðurhjatað var heltekið af sektarkennd þegar hún yfirgaf barnið sitt í morgun og hún óskað það með sér að hún hefði getað tekið sér lengra fæðingaorlof.
En þannig er þetta bara, kaldur veruleikinn runninn upp og lífið orðið eina rútína; rífa sig upp á morgana, klæða sig í gallann og út í frostkaldann morguninn, ná í barnið eftir vinnu, eiga með því örfá klukkutíma áður en það fer að sofa og vera svo örþreyttur sjálfur að maður getur ekki einu sinni haldið sér vakandi yfir aðþrengdum eiginkonum!
Ææææ skil þig vel.
ReplyDeleteÉg skal passa gúbba þinn rosa vel og kenna honum góða blúndu siði.
Kv. Signý
ég veit að það væri ekki hægt að hafa hann í betri höndum en þínum en passaðu þig samt að gera hann ekki af ofmikilli blúndu, það væri ekkert vel liðið hjá stálkarlinum pabba hans :)
ReplyDeleteÞekki þetta allt of vel!! Ekkert létt að skilja þessa gullmola við sig og ekki sé talað um þegar maður er að fara að streða fyrir salti í grautinn í staðinn fyrir að knúsast heima með þeim. EN það er nú samt svo að við höfum BARA gott af því að komast út meðal manna og byrja að nota toppstykkið aftur.
ReplyDeleteEn mín kæra, ertu ekki örugglega heima 26 og 27 mars??? eða ertu kanski á leiðinni til Egilss?? Við Hekla komum til landsins 15 mars en förum beint austur þá, kíkjum svo í bæinn tveim dögum áður en við hödlum til Sverige aftur!! Verðum að fá að sjá ykkur og knúsa duglega.
Inga þú ert svo lélegur heimasíðuhaldari! skamm!
ReplyDeleteI know...nennir þú ekki bara að sjá um þetta fyrir mig ;) By the way, áttir þú ekki sonna videjó myndavél einhverstaðar í fórum þínum?
ReplyDelete