Saturday, February 28, 2009
All by myself....
söng frú Celine Dion að alkunnri snilld eins og flestir muna. Þannig hafa síðustu tvær vikur liðið hjá mér, ég er búin að vera all by myself. Gúbbarnir mínir tveir ákvaðu nefnilega að vera eftir í sveitinni meðan ég þurfti að halda suður til að vinna fyrir salti í grautinn. Sem betur fer eru nú þessar tvær vikur á enda og koma þeir í bæinn á morgun! Yndislegt! Búið að vera frekar súrt að koma heim úr vinnunni og engin til að knúsa og skemmta sér með. Ég hélt að ég myndi fíla það í botn að fá smá tíma fyrir sjalfan mig og geta gert allt það sem enginn tími hefur verið til að gera síðan litli snúllinn minn kom í heiminn. En þrátt fyrir einveruna þá hefur lítið verið gert og hef ég komist af því að mig langar ekki að eyða tíma í sjálfan mig heldur vil ég eyða honum með snúllanum mínum :) Dagarnir eru bara ekkert skemmtilegir án hans!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

Til hamingju með nýju síðuna elsku Natan ritsjóri !!
ReplyDeleteAlltaf gaman að geta bætt við nýjum síðum inn á "linkana" á síðunni okkar. Lofum að kíkja reglulega við.
Söknum ykkar big time og hlökkum hrikalega til að sjá framan í smettið á ykkur!!! Verðiði ekki örugglega heima 26 og 27. mars??
Puss och kram
Ji þokkalega verðum við heima þessa daga til knúsa ykkur! Það verður bestast í heimi að hitta ykkur :)
ReplyDelete